Velkomin á heimasíðuna mína
Ég heiti Hinrik Dagur Steinsson
Ég er fæddur 17.mars 2003
Ég er mömmu og pabbastrákur
Ég er líka ömmu og afastrákur
Ég er stóri bróðir
Ég er byrjaður í skóla
Litla systir
Sara Dögg
Arndís María
Hildur Embla
- o -
Ljóð á skírnardaginn
Á hvítasunnu hýr og fagur
hlýjar geisli landið mitt,
á helgistundu Hinrik Dagur
hefur fengið nafnið sitt.
Langafi í Súluholti
- o -
EINKARÉTTUR SMÁBARNA
Ef mér finnst það flott, þá á ég það
Ef ég held á því, þá á ég það
Ef ég næ því frá þér, þá á ég það
Ef ég var með það rétt áðan, þá á ég það
Ef ég á það, þá má engan vegin líta út fyrir að annar eigi það
Ef ég er að byggja eitthvað, þá á ég alla kubbana
Ef það líkist dótinu mínu, þá á ég það
- o -
ELSKU MAMMA OG PABBI!
Ég er með svo litlar hendur
Ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni
Fæturnir á mér eru svo stuttir
Farðu hægar svo ég geti fylgt þér eftir
Ekki slá á hendurnar á mér þegar ég snerti eitthvað fallegt
Ég skil það ekki
Horfðu á mig þegar ég tala við þig
Þá veit ég að þú ert að hlusta
Ég hef viðkvæmar tilfinningar
Ekki vera alltaf að skamma mig
Leyfðu mér að gera mistök án þess að mér finnist ég vitlaus
Ekki búast við því að myndin sem ég teikna
Eða rúmið sem ég bý um verði fullkomið
Elskaðu mig fyrir að reyna
Mundu að ég er barn, ekki fullorðin vera
Stundum skil ég ekki það sem þú segir
Ég elska þig svo mikið
Elskaðu mig bara fyrir að vera ég,
ekki fyrir eitthvað sem ég geri
- o -
ÞAÐ LÆRA BÖRN SEM ÞAU BÚA VIÐ!
Það barn sem býr við hnjóð, lærir að fordæma.
Það barn sem býr við hörku, lærir fólsku.
Það barn sem býr við aðhlátur, lærir einurðarleysi.
Það barn sem býr við ásakanir, lærir sektarkennd.
Það barn sem býr við mildi, lærir þolgæði.
Það barn sem býr við örvun, lærir sjálfstraust.
Það barn sem býr við hrós, lærir að viðurkenna.
Það barn sem býr við réttlæti, lærir sanngirni.
Það barn sem býr við öryggi, lærir kjark.
Það barn sem býr við skilning, lærir að una sínu.
Það barn sem býr við alúð og vináttu, lærir að elska
- o -